- Hot Springs ehf (kt. 700502-2440) rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér.
- Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá greidda upphæð að frádregnu 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt.
- Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar. Ef dvöl styttist eftir kl. 13:00, dregst ein nótt frá heildar endurgreiðslu.
- Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu.
- Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 15:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma.
- Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 13:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför.
- Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar.
- Óheimilt er að framselja bókað stæði.
- Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK.
- Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.