Parka.is
Vaglaskógur Campground Photo
Vaglaskógur
Tjaldsvæðið Vaglaskógi leggur áherslu á fjölskylduvæna og góða aðstöðu fyrir unga sem aldna.
Hólf tjaldsvæðis
Myndir
Lýsing tjaldsvæðis
Skjólgóð og skemmtileg tjaldsvæði fyrir tjöld, hýsi og húsbíla sem bjóða upp á salerni fyrir hreyfihamlaða og með góðu aðgengi fyrir hjólastóla á flestum svæðum.

Stórarjóður (B) býður upp á rafmagn og salerni fyrir hreyfihamlaða og er rólegt svæði sem ætlað er þeim sem vilja slaka á og taka því rólega.

Hróarsstaðanes (C,D) er stærsta svæðið, staðsett við Fnjóskánna. Á þessu svæði er salerni, rafmagn, sturtur, þvottavél, þurrkari og aðalleiksvæðið (ærslabelgur, klifurpýramídi, lítill fótboltavöllur og sandkassasvæði).

Flatagerði (E) er með rafmagn, sturtur, þvottavél, þurrkara, salerni fyrir hreyfihamlaða, ásamt litlu leiksvæði með vegasalti og rólum. Þetta svæði er aðliggjandi fastleigustæðunum.

Brúarlundur (A) hefur salerni en hvorki rafmagn né heitt vatn. Brúarlundur hentar vel fyrir stuttar dvalir og náttúruunnendum.

Boðið er upp á forbókanir í Stórarjóður (B) og Flatagerði (E) og eru þau skipt upp í merkt afmörkuð hólf. Á Hróarsstaðarnesi (C, D) og í Brúarlundi (A) velur maður sér laust pláss og gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Ekki er hægt að tryggja rafmagn á neðra Hróarsstaðarnesi (D).

Vaglaskógur er einn fallegasti birkiskógur landsins með miklum möguleikum til útivistar. Tjaldsvæðin eru tengd víðfeðmu göngustíganeti sem liggur um Vaglaskóg og göngustígakort er hægt að nálgast við upplýsingaskilti í skóginum og hjá starfsfólki.

Stutt er í Akureyri (17km í gegnum Vaðlaheiðargöng), golfvöll með veitingaskála (3km), sundlaug með verslun og mini-golfi (12km).

Nokkrir punktar til að hafa í huga:
- Án fylgdar forráðamanns er aldurstakmarkið á tjaldsvæðunum 18 ár.
- Við flokkum rusl í Vaglaskógi og biðjum við tjaldsvæðagesti að gera slíkt hið sama á meðan dvölinni stendur
- Lausaganga hunda og katta er bönnuð, en leyfilegt er að hafa dýrin í taumi
- Hægt er að kaupa skott/millistykki fyrir rafmagnstengingu hjá tjaldvörðum.

Símanúmer tjaldsvæða er: 860 4714
Upplýsingar tjaldsvæðis
Land og skógur Vöglum, Fnjóskadal, 607 Akureyri , 607
8604714
vaglir@landogskogur.is
Opið: 31. Maí - 15. Sep
Verðskrá
Verð (15-67 ára)
2000 kr.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar
1500 kr.
Langtímaleiga - 15 til 29 dagar
3300 kr.
Langtímaleiga - 30 til 59 dagar
2400 kr.
Langtímaleiga - 60 til 105 dagar
1900 kr.
Gistináttaskattur
300 kr.
Rafmagn
1300 kr.
Skráningargjald
500 kr.
Eiginleikar
Hleðsla fyrir rafbíla
Veitingahús
Áfylling vatns
Flokkun sorps
Frítt fyrir börn
Heitt vatn
Hleðslustöð
Kalt vatn
Salerni
Rafmagn
Sturta
Uppþvottaaðstaða
Þurrkaðstaða
Þurrkari
Þvottavél
Seyrulosun
Hjólastóla aðgengi
Ærslabelgur
Golfvöllur
Gönguleiðir
Hjólaleiðir
Leiktæki
Sparkvöllur
Sundlaug
Gæludýr í taumi
Sumaropnun