Stórt og gott tjaldsvæði við Stuðlagil. Erum með veitingasölu í veitingavagni og handverksmarkað sem er opinn yfir sumarið. Glæsilegt salernishús með sturtum
Gestir skulu ganga snyrtilega um. Þar sem lög á Íslandi segja að flokka eigi allt rusl í plast, pappa, flöskur, málm og almennt rusl þá biðjum við ykkur að flokka ruslið í ruslafötur sem staðsettar eru á tjaldstæðinu. Bannað að vera með opinn eld út af eldhættu. Gestir skulu halda ró frá kl 23.00 til 07.00.
Hótel Stuðlagil kt. 6402210700 rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér. - Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá greidda upphæð að frádregnu 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt. - Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar. Ef dvöl styttist eftir kl. 15:00, dregst ein nótt frá heildar endurgreiðslu. - Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu. - Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 15:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma. - Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 12:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför. - Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 13 ára eða eldri (börn 12 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar. - Óheimilt er að framselja bókað stæði. - Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK. - Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tókst
Við munum senda þér upplýsingar um bókunina þína á Stuðlagil Canyon.
Villa
Upp kom villa
Þessi vefsíða notast við vefkökur til þess að bæta notenda upplifun. SjáFriðhelgisstefna